Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 20. júlí 2020 19:44
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir úr leik Sheffield United og Everton - Gylfi fær 7
Jarrad Branthwaite og Richarlison voru bestu menn vallarins í dag
Jarrad Branthwaite og Richarlison voru bestu menn vallarins í dag
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson fær 7 fyrir sína frammistöðu í 1-0 sigrinum á Sheffield United í dag en hann lagði upp sigurmark gestanna.

Gylfi spilaði í tíunni í dag er Carlo Ancelotti breytti leikskipulaginu en Sky Sports gaf honum 7.

Richarlison var maður leiksins en hann fær 8. Hinn 18 ára gamli Jarrad Branthwaite fær 8 líka en hann var afar öflugur í varnarlínu Everton.

Sheffield United: Henderson (7), Baldock (6), O’Connell (6), Basham (7), Egan (6), Stevens (6), Norwood (6), Berge (6), Osborn (6), McBurnie (5), McGoldrick (5).
Varamenn: Fleck (7), Sharp (6), Lundstram (6).

Everton: Pickford (7), Sidibe (7), Branthwaite (8), Keane (7), Digne (7), Davies (7), Gomes (7), Walcott (7), Sigurdsson (7), Richarlison (8), Calvert-Lewin (7).
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner