Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. júlí 2020 15:15
Elvar Geir Magnússon
John Cross: Henderson tilbúinn fyrir Man Utd eftir eitt ár
Dean Henderson.
Dean Henderson.
Mynd: Getty Images
John Cross, helsti fótboltaskríbent Daily Mirror, telur að David de Gea eigi að vera áfram aðalmarkvörður Manchester United á næsta tímabili.

„Kannski er ég með of mikla samúð á meðan bestu stjórarnir myndu ekki sætta sig við að hafa leikmann í hnignun. De Gea er ekki sami markvörður og hann var," segir Cross.

„Hann er marklínu-markvörður, góður í að verja en í dag bjóða bestu markverðirnir upp á meira. Ederson og Alisson eru svo öflugir í að búa til sóknir frá öftustu línu. Þeir gera meira en að verja skot."

„De Gea hefur verið fyrirgefið fyrir að bjóða ekki upp á það því hann hefur verið svo góður á línunni, en þannig er það ekki lengur."

„Ástæðan fyrir því að ég held að hann verði áfram aðalmarkvörður er að Dean Henderson er augljósi arftakinn, nema Jan Oblak verði sóttur, og það er enn eitt ár í að Henderson verði klár fyrir Manchester United," segir Cross.

„Henderson er ekki tilbúinn fyrir United enn. Það er eitt að vera frábær fyrir Sheffield United en annað að hafa allra augu á þér og vera með pressuna að spila í hverri viku fyrir United."
Athugasemdir
banner
banner