Fylkir tók í kvöld á móti Stjörnunni í 6. umferð Pepsi-Max deildar kvenna og höfðu Fylkisstelpur betur. Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var virkilega sáttur með leikinn:
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 1 Stjarnan
"Ég er búin að ákveða það að vera ekki svekktur með leikinn, auðvitað ömurlegt að gera svona stór mistök sem valda því að við töpum en ég hef ákveðið að vera himinlifandi með frammistöðu leikmanna og þær áttu þvílíkt skilið að fá út úr leiknum og spiluðu hrikalega vel. Það gefur okkur eitthvað inn í mótið til að vinna með áfram. Liðið spilaði vel og við hreinlega pökkuðum þeim saman."
"Eftir rauða spjaldið biðum við með hvort við ættum að bakka aðeins en við vorum bara áfram með boltann og að pressa og leystum leikinn gríðarlega vel."
Stjarnan voru betri aðilinn í leiknum í kvöld en voru í erfiðleikum með að skora mörk.
"Við fáum færin vegna þess að við spiluðum vel og það er það sem ég tek út úr þessu og tala um við stelpurnar. Við gerðum þetta það vel að við áttum að skora og það er ákveðið reynsluleysi í sóknarleiknum sem veldur því að við klárum þetta ekki og svo eru bæði mörkin bara klúður."
"Þetta kemur allt saman, ef við spilum svona áfram þá vinnum við leiki. Við þurfum að þroska þessar stelpur og kenna þeim fótbolta og gera þær betri. Þær eru ungar og gera sín mistök. Þær voru frábærar í leiknum og ég er búin að segja þeim það og eins gott að þær trúi því. Við þurfum að vera aðeins rólegri inn í teig, taka djúpöndun og leggja hann í markið. Eftir 1-2 ár hefðum við skorað 5-6 mörk hérna."
Shameeka Fishley fékk rautt spjald eftir 70 mínútur og aðspurður var Kristján sammála dómnum við fyrstu sýn.
Nánar er rætt við Kristján í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir