FH 0 - 1 ÍBV
0-1 Olga Sevcova ('24 )
0-1 Olga Sevcova ('24 )
ÍBV náði í annan sigur sinn í Pepsi Max-deild kvenna er liðið lagði FH að velli, 1-0, er liðin léku sjötta leik sinni á tímabilinu.
Olga Sevcova skoraði eina mark leiksins á 24. mínútu en hún skoraði þá eftir sendingu frá Miyah Watford.
Eyjaliðið vann fyrsta leik sinn í fyrstu umferð en tapaði svo fjórum í röð. Því mikill léttir fyrir liðið að ná inn sigri í dag.
FH náði í öflugan sigur gegn Þór/KA í síðustu umferð en náði ekki að fylgja eftir í dag.
Lokatölur 1-0 fyrir ÍBV sem er nú með 6 stig, jafnmörg og Stjarnan og Þór/KA. Á meðan er FH með þrjú stig í níunda sætinu.
Athugasemdir