Everton er 1-0 yfir gegn Sheffield United þegar um það bil hálftími er eftir af leiknum en Richarlison skoraði með skalla eftir aukaspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni.
Markið kom í upphafi síðari hálfleiks. Everton vann aukaspyrnu hægra megin á vellinum.
Gylfi Þór tók aukaspyrnuna sem rataði beint á kollinn á Richarlison sem stangaði boltann í netið. Þriðja stoðsending Gylfa í deildinni á þesasri leiktíð.
Hægt er að sjá markið með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hjá Richarlison
Athugasemdir