Hollenski miðvörðurinn Virgil van Dijk átti glimrandi leik þegar Liverpool sigraði Crystal Palace á Selhurst Park í kvöld.
James Milner skoraði fyrra mark Liverpool úr vítaspyrnu en Sadio Mane skoraði það seinna nánast með síðustu spyrnu leiksins. Það var Van Dijk sem skaraði fram úr, en hann stýrði vörn Liverpool eins og herforingi og hélt Christian Benteke niðri.
Hér að neðan er einkunnagjöf Sky Sports.
Crystal Palace: Hennessey (7), Wan-Bissaka (6), Van Aanholt (7), Tomkins (6), Sakho (6), Schlupp (5), McArthur (6), Milivojevic (6), Townsend (6), Zaha (6), Benteke (6).
Varamenn: Sorloth (5), Ward (4). Max Meyer spilaði ekki nægilega mikið til að verðskulda einkunn.
Liverpool: Alisson (7), Alexander-Arnold (7), Van Dijk (8), Gomez (7), Robertson (7), Wijnaldum (6), Milner (7), Keita (7), Salah (7), Mane (7), Firmino (6).
Varamenn: Henderson (6). Adam Lallana og Daniel Sturridge spiluðu ekki nægilega mikið til að verðskulda einkunn.
Maður leiksins: Virgil van Dijk.
Athugasemdir