Harpa Þorsteinsdóttir verður ekki með íslenska kvennalandsliðinu í leikjunum gegn Þýskalandi og Tékklandi í undankeppni HM í byrjun september.
Harpa meiddist illa á hné þegar lið hennar, Stjarnan, tapaði fyrir Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.
Í samtali við Vísi segir Harpa vera að bíða eftir að komast í myndatöku á hnénu, bólgur þurfi að hjaðna áður en hægt er að skoða það.
Harpa segir það þó ljóst að meiðslin séu alvarleg og hún sé ekki að fara að spila fótbolta á næstunni.

Íslenska kvennalandsliðið getur tryggt sig á lokakeppni HM í fyrsta skipti í komandi leikjum en Freyr Alexandersson tilkynnir leikmannahópinn fyrir þann leik á fréttamannafundi 13:15 í dag.
Athugasemdir