Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 20. ágúst 2018 21:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Inkasso-kvenna: Fylkir vann Keflavík aftur
Marija skoraði tvö mörk fyrir Fylki.
Marija skoraði tvö mörk fyrir Fylki.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkir 3 - 0 Keflavík
1-0 Marija Radojicic ('12 )
2-0 Margrét Björg Ástvaldsdóttir ('35 )
3-0 Marija Radojicic ('75 )
Lestu nánar um leikinn

Það var toppslagur í Inkasso-deild kvenna í kvöld þegar Fylkir fékk Keflavík í heimsókn í Árbæinn.

Fylkir er eina liðið sem hefur unnið Keflavík í sumar en Árbæjarliðið gerði sér lítið fyrir og sigraði Keflavík aftur í kvöld.

Marija Radojicic kom Fylkir yfir á 12. mínútu en Margrét Björg Ástvaldsdóttir skoraði annað mark Fylkiskvenna á 35. mínútu. Staðan var 2-0 í hálfleik.

Fylkir gerði út um leikinn þegar stundarfjórðungur var eftir en Marija Radojicic skoraði þá sitt annað mark.

Lokatölurnar í Árbænum 2-0 fyrir Fylki sem kemst á topp deildarinnar og leik til góða á Keflavík. Fylkir er með 36 stig og Keflavík 34. Þessi lið eru á góðri leið með að fara upp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner