Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 20. ágúst 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Líkleg byrjunarlið Crystal Palace og Liverpool
Liverpool heimsækir Crystal Palace í kvöld.
Liverpool heimsækir Crystal Palace í kvöld.
Mynd: Getty Images
Crystal Palace og Liverpool mætast í síðasta leiknum í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld klukkan 19:00.

Guardian spáir því að Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, stilli upp sama byrjunarliði og í 4-0 sigrinum á West Ham í fyrstu umferð.

Dejan Lovren er ennþá frá keppni á meðan Joel Matip er að verða klár eftir meiðsli.

Líklegt er þó að Joe Gomez verði áfram við hlið Virgil van Dijk í hjarta varnarinnar.

Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace er í toppmálum en engin meiðsli eru í hans hópi.

Hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið.
Athugasemdir
banner
banner
banner