Gary Neville þarf að klæðast Liverpool treyju merkta Xherdan Shaqiri eftir að hafa tapað fyrir Jamie Carragher í skotkeppni.
Neville tapaði skotkeppninni fyrir tveimur vikum og óttast Shaqiri að Manchester maðurinn fari á bak orða sinna.
Svisslendingurinn ákvað því að grípa til sinna ráða og skrifaði skilaboð til Neville aftan á treyjuna sína og smellti eiginhandaráritun með.
„Til míns helsta aðdáanda, Gary. Vinsamlegast ekki bakka. Fyrirgefðu, vinsamlegast ekki bakka úr þessu veðmáli."
Neville hefur nokkrum sinnum lýst yfir andúð sinni á leikstíl Shaqiri og gagnrýnt hann fyrir að bakka ekki í vörn og sinna ekki varnarskyldum sínum.
Athugasemdir