Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 20. september 2018 14:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Huginn ekki sagt sitt síðasta - Var Fellavöllur leikfær?
Brynjar Skúlason.
Brynjar Skúlason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Allur teigurinn við annað markið er á floti, finnst fólki þetta ekkert skrýtið? Ég myndi segja að þessi völlur væri ekki leikfær.
,,Allur teigurinn við annað markið er á floti, finnst fólki þetta ekkert skrýtið? Ég myndi segja að þessi völlur væri ekki leikfær.
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Huginsmenn ætla að leita réttar síns.
Huginsmenn ætla að leita réttar síns.
Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonar
KSÍ hefur tekið ákvörðun "Hugins-Völsungs málið" og er Völsungi dæmdur 3-0 sigur í þessu flókna máli. „Huginn mætti ekki til leiks," segir í skýrslunni frá KSÍ.

Endurtekinn leikur Hugins og Völsungs í 2. deild karla átti að fara fram í gær, klukkan 16:30.

Liðin mættust fyrst í ágúst og þá hafði Huginn betur 2-1 en afrýjunardómstóll KSÍ ógildi viðureign liðanna vegna dómaramistaka sem áttu sér stað í leiknum og vegna skýrslugerðar dómara eftir leikinn.

Völsungur kærði framkvæmd leiksins þar sem félagið taldi að skýrslan hafi verið fölsuð.

Huginsmenn lýstu yfir óánægju sinni með dóminn þegar hann var kveðinn upp.

Í dómsuppkvaðningu kom fram að leikurinn ætti að fara fram á Seyðisfjarðarvelli en hann var í gærmorgun færður á Egilsstaði, á Fellavöll. Þangað mætti lið Völsungs rétt upp úr klukkan 15 ígær en Huginsmenn mættu ekki. Leikmenn Hugins mættu þess í stað á Seyðisfjarðarvöll.

Formaður knattspyrnudeildar Hugins segir að það hafi aldrei komið til greina að ferðast á Fellavöll þrátt fyrir að Huginn hafi haft samband við KSÍ í gær til þess að greina frá því að Seyðisfjarðarvöllur væri óleikhæfur.

„KSÍ tekur ákvörðun hvort vellirnir séu óleikhæfir, það er ekki okkar hlutverk að dæma um það. Við mæltum með því að leiknum yrði frestað því það er bara einn völlur tekinn fram í dómnum og það er Seyðisfjarðarvöllur," sagði Sveinn Ágúst, formaður knattspyrnudeildar Hugins, við Fótbolta.net.

„Hljótum að leita réttar okkar"
Fótbolti.net náði tali af Brynjari Skúlasyni, þjálfara Hugins, núna rétt í þessu og fékk hans viðbrögð við þeirri niðurstöðu KSÍ að dæma Völsungi 3-0 sigur.

„Ég var að sjá þetta. Við vorum búnir að gera ráð fyrir því að þetta gæti gerst. KSÍ taldi sig eiga rétt á því að geta fært leikvöllinn en við erum ósammála því. Við hljótum að leita réttar okkar eins og aðrir sem eru ósáttir við það sem KSÍ gerir. Vonandi klúðra þeir því ekki eins og þessu máli," sagði Brynjar.

„Við hljótum að hafa rétt á því (að leita réttar okkar) eins og aðrir. Við eigum eftir að skoða málið og ákveða hvað við gerum. Mér finnst mjög líklegt að við munum áfrýja þessum úrskurði."

„Það stendur í dómsorðunum að endurleikinn leik skuli spila á Seyðisfjarðarvelli. Það stendur líka að KSÍ greiði ferðakostnað Völsungs, geta þeir þá bara hætt við að greiða ferðakostnað Völsungs? Geta þeir hætt við að endurspila leikinn? Þetta eru dómsorð og þau hljóta að standa. Ef þau standa ekki eru þessi dómsorð einskis virði."

„Finnst fólki þetta ekkert skrýtið?"
Brynjar setti inn myndband á Facebook-síðu Hugins í gær en þar sjást hvernig aðstæður voru á Fellavelli, leikvellinum sem KSÍ hafði fært leikinn á.

„Allur teigurinn við annað markið er á floti, finnst fólki þetta ekkert skrýtið? Ég myndi segja að þessi völlur væri ekki leikfær."

Myndbandið má sjá neðst í fréttinni.

Völsungur á núna möguleika á að komast upp
Ef þennan úrskurð KSÍ er Völsungur með 40 stig í 2. deildinni, tveimur stigum frá toppliðum Aftureldingar og Gróttu fyrir lokaumferðina. Völsungur á því tæknilega séð enn möguleika á að komast upp um deild.

Völsungur sækir Tindastól heim í lokaumferðinni, en auk Völsungs eru Vestri, Afturelding og Grótta að berjast um að fara upp.

Huginsmenn voru nú þegar fallnir áður en niðurstaða KSÍ var birt. Huginn er núna með sex stig á botni deildarinnar.

Sjá einnig:
Völsungur á Egilsstöðum en Huginn á Seyðisfirði
Huginn sagði Seyðisfjarðarvöll óleikhæfan
„Skýrt í dómnum að leikinn skuli spila á Seyðisfjarðarvelli"


Athugasemdir
banner
banner
banner