Fyrstu umferðinni í riðlakeppni Meistaradeildarinnar er lokið. Hér að neðan má sjá úrvalslið umferðarinnar að mati ESPN.
Wojciech Szczesny (Juventus) - Hjálpaði 10 leikmönnum Juventus að vinna Valencia á útivelli þrátt fyrir að vera manni færri eftir að Cristiano Ronaldo fékk rauða spjaldið.
Milos Degenek (Rauða Stjarnan) - Hjálpaði sínum mönnum að halda sóknarlínu Napoli í skefjum og ná í markalaust jafntefli.
Nicolas Tagliafico (Ajax) - Argentínski vinstri bakvörðurinn skoraði tvívegis í sigri Ajax á AEK Aþenu.
Renato Sanches (Bayern Munchen) - Skoraði gegn gömlu félögunum í Benfica og er kominn í gang aftur eftir martröðina hjá Swansea á síðasta tímabili.
Nabil Fekir (Lyon) - Skoraði síðara markið og átti stóran þátt í því fyrra í óvæntum útisigri Lyon gegn Manchester City.
Athugasemdir