Sergio Ramos bætti spjaldamet Paul Scholes í Meistaradeildinni er Real Madrid lagði Roma að velli 3-0.
Real lenti ekki í vandræðum í leiknum og átti Ramos góðan leik, en fékk þó sitt 36. gula spjald í keppninni.
Ramos er þekktur fyrir að vera nokkuð grófur og er ekki vel liðinn af stuðningsmönnum annarra liða heldur en Real Madrid. Hann fékk sérstaklega mikið hatur í sinn garð þegar hann meiddi Mohamed Salah í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vor.
Ramos er líklegast ánægður með þetta met sitt, en hann á einnig metið yfir flest spjöld í spænsku efstu deildinni og með spænska landsliðinu.
Scholes fékk 35 gul spjöld á Meistaradeildarferli sínum með Manchester United.
Athugasemdir