Rennes lagði Jablonec að velli í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Hatem Ben Arfa gerði sigurmark heimamanna úr vítaspyrnu í uppbótartíma.
Það var Ismaila Sarr, tvítugur kantmaður sem fór með Senegal á HM, sem gerði fyrsta mark leiksins.
Sarr sendi knöttinn á liðsfélaga sinn og fékk hann aftur til baka á lofti fyrir utan vítateig. Senegalinn gerði sér lítið fyrir og þrumaði knettinum viðstöðulaust í átt að marki og átti Vlastimil Hruby aldrei séns á að verja skotið.
Sarr kom til Rennes í fyrra og gerði 5 mörk í 24 leikjum í frönsku deildinni. Þetta var hans fyrsti Evrópuleikur á ferlinum.
Markið er hægt að sjá hér fyrir neðan eða með að smella hér.
Goal of my life from Sarr 😍 pic.twitter.com/bDb3Fnrr9w
— The Boi (@ChuBoi) September 20, 2018
Goal of my life from Sarr 😍 pic.twitter.com/bDb3Fnrr9w
— The Boi (@ChuBoi) September 20, 2018
Athugasemdir