Fotbolti.net
20.09.20 - 12:54
Ívan Guðjón Baldursson

England: Kane lagði fjórum sinnum upp fyrir Son í stórsigri

England: Kane lagði fjórum sinnum upp fyrir Son í stórsigri
Canon

Mynd: Getty Images

Southampton 2 - 5 Tottenham
1-0 Danny Ings ('32)
1-1 Heung-min Son ('45)
1-2 Heung-min Son ('47)
1-3 Heung-min Son ('64)
1-4 Heung-min Son ('73)
1-5 Harry Kane ('82)
2-5 Danny Ings ('90, víti)
Southampton tók á móti Tottenham í fyrsta leik dagsins og skoraði Danny Ings fyrsta mark leiksins eftir 32 mínútur.

Heimamenn voru betri í fyrri hálfleik en gestirnir frá höfuðborginni náðu að jafna, gegn gangi leiksins, rétt fyrir leikhlé. Heung-min Son skoraði þá með fyrstu marktilraun Tottenham eftir stoðsendingu frá Harry Kane.

Son skoraði aftur í upphafi síðari hálfleiks eftir aðra stoðsendingu frá Kane. Heimamenn reyndu að koma til baka en varnarleikur þeirra afleitur þar sem Son fullkomnaði þrennuna sína á 64. mínútu, aftur eftir sendingu frá Kane.

Það liðu aðeins níu mínútur þar til Son setti sitt fjórða mark eftir sendingu frá Kane, sem gerði fimmta markið sjálfur.

Markafjörið var þó ekki búið þar sem heimamenn fengu dæmda vítaspyrnu undir lokin eftir að boltinn fór í hendi Matt Doherty innan vítateigs. Boltinn var í leik þegar VAR herbergið sagði David Coote dómara að skoða skjáinn sinn og niðurstaðan vítaspyrna.

Furðulegur dómur þar sem boltinn var ekki á leið í átt að marki og fór fyrst af varnarmanni Tottenham áður en hann hæfði hendi Doherty. Írinn gat ekkert gert til að koma sér frá knettinum, ekki ósvipað atvikinu þegar Victor Lindelöf fékk dæmda á sig vítaspyrnu í tapi Man Utd gegn Crystal Palace.

Auðveldur sigur fyrir Tottenham í stórfurðulegum leik, þar sem heimamenn í Southampton voru betri í fyrri hálfleik en skelfilegur varnarleikur og alltof há varnarlína komu í bakið á þeim.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.