Slutsk 1 - 3 BATE Borisov
1-0 Egor Semenov ('24)
1-1 Maksim Skavysh ('39)
1-2 Egor Filipenko ('43)
1-3 Maksim Skavysh ('73)
1-0 Egor Semenov ('24)
1-1 Maksim Skavysh ('39)
1-2 Egor Filipenko ('43)
1-3 Maksim Skavysh ('73)
Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði BATE sem lagði Slutsk að velli í hvítrússneska boltanum í dag.
Heimamenn í Slutsk komust yfir á 24. mínútu en Willum lagði upp jöfnunarmarkið fyrir Maksim Skavysh korteri síðar.
BATE var við algjöra stjórn í fyrri hálfleik og tók forystuna með marki frá Egor Filipenko skömmu fyrir leikhlé.
Síðari hálfleikurinn var jafnari en BATE áfram með yfirhöndina og innsiglaði Skavysh sigurinn með sínu öðru marki á 73. mínútu. Willum átti einnig þátt í því marki.
Willum spilaði fyrstu 83 mínútur leiksins og er BATE á toppi deildarinnar eftir sigurinn, með þriggja stiga forystu á Shakhtyor Soligorsk sem á leik til góða síðar í dag.
Athugasemdir