Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 20. október 2018 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho fór inn á völlinn til að klappa Martial á bakið
Gladdi marga stuðningsmenn
Mynd: Getty Images
Frakkinn Anthony Martial átti eftirminnilegan leik þegar Manchester United gerði 2-2 jafntefli Chelsea í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar á þessum laugardegi.

Martial gerði bæði mörk United í leiknum. Man Utd var 1-0 undir í hálfleik en Martial mætti af miklum krafti í seinni hálfleikinn og kom United 2-1. Ross Barkley jafnaði fyrir Chelsea á lokasekúndum leiksins.

Samband Martial við Jose Mourinho, stjóra Man Utd, hefur verið mikið í umræðunni síðan Mourinho tók við liðinu. Oft á tíðum hefur Martial þurft að sitja á bekknum og hefur umboðsmaður hans talað opinskátt um að hann vilji fara frá United.

Martial virtist þó vera ánægður í dag og það var ekki eins og samband hans við Mourinho væri mjög slæmt.

Mourinho var mjög sáttur með Martial. Eftir að staðan varð 2-1 fór Mourinho inn á völlinn til að klappa Martial á bakið. Mourinho ákvað svo að taka besta leikmann vallarins út af en þegar Martial fór út af faðmaði hann Mourinho með bros á vör.

Martial er nú ekki þekktur fyrir að brosa mikið en þetta augnablik á milli hans og Mourinho gladdi hjörtu margra stuðningsmanna Man Utd.













Athugasemdir
banner
banner
banner