Mo Salah var á skotskónum þegar Liverpool sigraði Huddersfield 0-1 í kvöld.
Salah sagði í viðtali eftir leikinn að verkefnið hafi verið erfitt.
„Þetta var erfitt en við náðum í stigin þrjú og það er það allra mikilvægasta. Við þurftum að hafa mikið fyrir þessu en við vissum að þetta yrði erfitt."
Salah skoraði sitt 50. mark í enskum fótbolta í dag.
„Þetta er góð tilfinning, en það allra mikilvægasta er að hjálpa liðinu að ná að vinna. Ég hef ekki miklar áhyggjur af því þegar ég er ekki að skora, það sem skiptir öllu máli er liðið, á meðan ég get hjálpað liðinu við að ná góðum úrslitum þá hef ég engar áhyggjur," sagði Salah.
Athugasemdir