Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 20. október 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fati fær samning með alveg eins ákvæði og Pedri
Ansu Fati.
Ansu Fati.
Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn Ansu Fati er við það að skrifa undir nýjan samning við Barcelona.

Miklar vonir eru bundnar við Fati fyrir framtíðina. Stærsta merkið um það er líklega treyjunúmerið sem hann ber núna á bakinu; númer tíu. Lionel Messi var með það númer á bakinu í um tíu ár hjá Barcelona, áður en hann fór til Paris Saint-Germain síðasta sumar.

Pedri, mjög efnilegur miðjumaður Barcelona, gerði nýverið nýjan samning við félagið til 2026.

Það er riftunarákvæði í samningi Pedri upp á 1 milljarð evra. Það verður sama ákvæði í samningi Fati. Ef félag bíður Barcelona einn milljarð evra þá verður Barcelona að taka því tilboði.

Fati og Pedri eru eflaust tveir leikmenn sem Barcelona mun byggja lið sitt í kringum á næstu árum.
Athugasemdir
banner
banner