Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 20. október 2021 12:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segir Atla á leið til Vaalerenga
Atli Barkarson
Atli Barkarson
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Atli Barkarson er á leið í Vålerenga samkvæmt sparkspekingnum Kristjáni Óla Sigurðssyni. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur norska félagið mikinn áhuga á bakverðinum.

Atli varð tvöfaldur meistari með Víkingi í sumar og er hluti af U21 árs landsliði Íslands.

Atli ræddi við Fótbolta.net eftir bikarúrslitaleikinn á laugardag. Þar var hann spurður út í sína framtíð.

„Það kemur allt í ljós. Ég væri alveg til í að vera áfram leikmaður Víkings og ég væri alveg til í að fara út," sagði Atli.

Atli er tvítugur vinstri bakvörður sem uppalinn er hjá Völsungi og var í nokkur ár á mála hjá Norwich. Árið 2019 lék hann um skeið með Fredrikstad í Noregi.


Atli Barkar: Eitthvað sem alla dreymir um
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner