Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leik Slovan Bratislava frá Slóvakíu og Lincoln Red Imps frá Gíbraltar í Sambandsdeild Evrópu.
Sambandsdeildin er C-deild Evrópukeppna hjá UEFA, á eftir Meistaradeildinni og Evrópudeildinni.
Leikurinn fer fram fimmtudaginn 21. október í Bratislava, Slóvakíu.
Vilhjálmur Alvar hefur verið einn af bestu dómurum landsins undanfarin ár. Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Birkir Sigurðarson. Fjórði dómari er Helgi Mikael Jónasson.
Athugasemdir