„Það er í raun óásættanlegt að sjá hann strunsa út af Old Trafford þegar liðið hans er að vinna 2-0. Við erum að tala um þann besta af þeim bestu. Þetta er óvirðing við liðsfélaga hans," segir sparkspekingurinn Micah Richards við breska ríkisútvarpið.
Cristiano Ronaldo strunsaði inn í klefa fyrir lokaflaut þegar United vann Tottenham í gær og fagnaði sigrinum ekki með liðinu. Hann var ónotaður varamaður í leiknum.
Cristiano Ronaldo strunsaði inn í klefa fyrir lokaflaut þegar United vann Tottenham í gær og fagnaði sigrinum ekki með liðinu. Hann var ónotaður varamaður í leiknum.
„Stjórinn þurfti að glíma við vandræði vegna hans í upphafi tímabils, á undirbúningstímabilinu og nú heldur þetta áfram. Það er bara ein leið til að enda þetta. Það þarf að ná samkomulagi í janúar og það þarf að láta hann fara."
„Hann er að lítilsvirða stjórann og það er best fyrir alla ef leiðir skilja. Ronaldo er ósáttur þegar sviðsljósið er ekki á honum. Hann er 37 ára og þarf ekki að gera þetta lengur, við vitum öll að hann vill spila. Þessi sigur á að snúast um liðið," segir Richards.
Peter Schmeichel, fyrrum markvörður Manchester United, segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með hegðun Ronaldo í gær.
„Hann hlýtur að vita að þetta yrðu fyrirsagnirnar. Þetta er í fyrsta sinn sem ég get sagt að ég hafi orðið fyrir vonbrigðum með Ronaldo. Venjulega þá stend ég við bakið á honum, ég skil stöðuna sem hann er í. En félagið þarf ekki á svona truflun að halda," segir Schmeichel.


