Fotbolti.net
20.10.22 - 10:00
Elvar Geir Magnússon

Schmeichel: Það sem er í gangi á æfingasvæðinu er farið að sjást í leikjum

Antony, Fred og Bruno fagna í gær.

Antony, Fred og Bruno fagna í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Peter Schmeichel, fyrrum markvörður Manchester United, var hæstánægður með frammistöðu síns liðs í gær. United átti frábæran leik og vann 2-0 sigur gegn Tottenham.
„Mér fannst Bruno Fernandes spila afskaplega vel. Þegar talað er um leikmenn í hans gæðaflokki þá verða þeir aldrei betri en leikmennirnir sem eru í kringum hann. Hann þarf á því að halda að leikmenn bregðist við því hvernig hann hugsar," segir Schmeichel.

„Það sást strax þegar Bruno kom til Manchester United að hann er mjög klókur sendingamaður. En liðsfélagar hans verða að vita hvert sendingarnar eru að fara og mér finnst hann ekki hafa fengið nægilega mikla hjálp."

„Í leiknum í gær þá brugðust allir rétt við. Það sést greinilega að það sem er í gangi á æfingavellinum er byrjað að sýna sig í leikjum og ég tel að það sé ákaflega jákvætt."

United er einu stigi frá Meistaradeildarsæti eftir þennan góða sigur í gær. Schmeichel segir að þrátt fyrir mjög góða frammistöðu United sé þó ekki hægt að horfa framhjá því hversu slakir Tottenham menn voru.

„Það var augljóst að Tottenham var ekki með plan B í gær og það hlýtur að vera svekkjandi fyrir stuðningsmenn liðsins," segir Schmeichel.
Schmeichel: Það sem er í gangi á æfingasvæðinu er farið að sjást í leikjum
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.