Fotbolti.net
20.11.19 - 09:38
Magnús Már Einarsson

Carragher hissa á brottrekstri Pochettino: Tímasetningin mjög skrýtin

Rekinn frá Tottenham.

Rekinn frá Tottenham.

Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Þetta er mikið áfall. Það er engin spurning að Spurs hefur byrjað tímabilið illa og gengið illa í úrvalsdeildinni árið 2019 en ég tel að starfið sem Mauricio Pochettino hefur unnið sé ótrúlegt,"</I> sagði Jamie Carragher, sérfræðingur á Sky, eftir að Pochettino var rekinn frá Tottenham í gærkvöldi.

Tottenham hefur átt erfitt uppdráttar á þessu tímabili og Pochettino var rekinn í gær þrátt fyrir að hafa fyrr á þessu ári komið liðinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Jose Mourinho hefur tekið við liðinu í hans stað.
„Tímasetningin er mjög skrýtin. Ég er hissa á því að hann sé rekinn og þegar ég heyrði fréttirnar fyrst þá hélt ég að um sameiginlega ákvörðun væri að ræða," sagði Carragher.

„Sú staðreynd að hann var rekinn gerir þetta mjög skrýtið og mér finnst þetta vera rugl miðað við starfið sem hann hefur unnið."

„Ég tel að hann hefði átt að fá tíma út tímabilið til að reyna að koma Tottenham aftur þar sem félagið á að vera og Tottenham á ekki endilega að vera í topp fjórum."

„Ég er ekki að reyna að gera lítið úr þeim en miðað við fjármagn þá er það ótrúlegt hvað Pochettino hefur náð að gera fyrir félagið. Tottenham ætti að vera topp sex félag en hann hefur gert félagið að topp fjögur félagi og það vann næstum titlinn og vann næstum Meistaradeildina."

„Fólk getur sagt að hann hafi ekki unnið titil en miðað við það sem hann er með í höndunum, stærð hópsins, þá sýnir það hæfileika Pochettino sem stjóra. Hann verðskuldaði klárlega að klára tímabilið og reyna að ná eins nálægt Meistaradeildarsæti og hægt væri."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.