Fotbolti.net
20.11.21 - 17:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Wilson frábær í sigri Fulham

Harry Wilson í leik með Waleska landsliðinu

Harry Wilson í leik með Waleska landsliðinu

Canon

Mynd: EPA

Átjánda umferð Championship deildarinnar hófst í dag en aðeins einn leikur fer fram á morgun.
Fulham endurheimti toppsætið í bili að minnsta kosti með öruggum 4-1 sigri gegn Barnsley. Staðan var 2-0 í hálfleik en Alexandar Mitrovic og Fabio Carvalho skoruðu mörkin.

Neeskens Kebano skoraði þriðja markið eftir sendingu frá Harry Wilson. Barnsley minnkaði muninn áður en Wilson skoraði fjórða og síðasta markið.

West Brom tapaði gegn Huddersfield 1-0. Huddersfield er í 7. sæti fjórum stigum á eftir West Brom sem er í 4. sæti. 4-6. sæti gefur sæti í umspili.

Stoke er stigi á eftir West Brom eftir sigur á Peterbrough og Coventry með jafn mörg stig og Stoke eftir markalaust jafntefli gegn Sheffield United.

Swansea og Blackpool skyldu jöfn 1-1. Daníel Leó Grétarsson sat allan tíman á varamannabekk Blackpool.

Aðeins einn leikur er eftir um helgina en botnlið deildarinnar, Derby fær Bournemouth í heimsókn á morgun. Derby er með -3 stig en Bournemouth er stigi á eftir Fulham.

Öll úrslit og stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.

Bristol City 1 - 1 Blackburn
1-0 Callum ODowda ('35 )
1-1 Ben Brereton ('75 )

Fulham 4 - 1 Barnsley
1-0 Aleksandar Mitrovic ('24 )
2-0 Fabio Carvalho ('34 )
3-0 Neeskens Kebano ('72 )
3-1 Victor Adeboyejo ('78 )
4-1 Harry Wilson ('81 )

Huddersfield 1 - 0 West Brom
1-0 Danel Sinani ('6 )
Rautt spjald: Jake Livermore, West Brom ('79)

Hull City 2 - 0 Birmingham
1-0 George Honeyman ('17 )
2-0 Mallik Wilks ('57 )
Rautt spjald: Gary Gardner, Birmingham ('43)

Middlesbrough 1 - 1 Millwall
1-0 Matt Crooks ('15 )
2-0 Sol Bamba ('27 , sjálfsmark)

Preston NE 1 - 2 Cardiff City
1-0 Sean Maguire ('2 )
1-1 Mark Mcguinness ('51 )
1-2 James Collins ('66 )

Reading 1 - 1 Nott. Forest
0-1 Philip Zinckernagel ('4 )
1-1 Scott Dann ('64 )

Sheffield Utd 0 - 0 Coventry

Stoke City 2 - 0 Peterborough United
1-0 Mario Vrancic ('3 )
2-0 Tyrese Campbell ('90 )
Rautt spjald: Sam Surridge, Stoke City ('90)

Swansea 1 - 1 Blackpool
1-0 Joel Piroe ('35 )
1-1 Keshi Anderson ('86 )
Ben Brereton jafnaði fyrir Blackburn

Ben Brereton jafnaði fyrir Blackburn

Canon

Mynd: Getty Images

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+628
6Swansea15+426
7West Ham15+1524
8Southampton15+1424
9Sheffield Utd15+323
10QPR15+522
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-219
14Millwall15-218
15Wrexham15-218
16Bristol City15-818
17Bolton15-917
18Lincoln City15-1016
19Cardiff City15-215
20Watford15-1015
21Charlton Athletic15-1115
22Burnley15-713
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.