Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   fim 20. desember 2018 08:19
Magnús Már Einarsson
Ísland mætir Eistlandi en ekki Kúveit
Icelandair
Hilmar Árni Halldórsson og Birkir Már Sævarsson eru báðir á leið til Katar með landsliðinu.
Hilmar Árni Halldórsson og Birkir Már Sævarsson eru báðir á leið til Katar með landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breyting hefur orðið á mótherja Íslands í öðrum vináttuleiknum í Katar í janúar.

Ísland mætir Svíþjóð þann 11. janúar og fyrirhugað var að leika gegn Kúveit þann 15. janúar.

KSÍ hefur nú greint frá því að svo verði ekki en Ísland mætir þess í stað Eistlandi 15. janúar.

Erik Hamren tilkynnti í gær hópinn sem fer til Katar en þar má finna sjö leikmenn úr Pepsi-deildinni.

Smelltu hér til að sjá landsliðshópinn
Athugasemdir
banner
banner
banner