Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   þri 20. desember 2022 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Drake veðjaði á Argentínu en tapaði samt
Lionel Messi og hans menn komust í fámennan hóp er liðið vann Frakkland í úrslitaleik HM í Katar en það var að sigrast á bölvun kanadíska rapparans Drake.

Netverjar hafa lengi talað um þessa bölvun sem Drake setur á íþróttamenn og lið.

Í hvert sinn sem hann klæðist treyju ákveðins liðs eða það birtist mynd af honum með íþróttamönnum þá boðar það yfirleitt eitthvað slæmt fyrir viðkomandi.

Drake veðjaði á Argentínu gegn Frakklandi og voru flestir vissir um að Frakkland myndi hafa sigur, en Argentína sigraði þessa bölvun og vann eftir vítakeppni.

Rapparinn tapaði samt sem áður veðmálinu. Hann veðjaði 140 milljónum íslenskra króna á að Argentína myndi vinna leikinn eftir venjulegan leiktíma.

Argentína komst tveimur mörkum yfir og var útlitið ágætt fyrstu 70 mínúturnar eða þangað til Frakkar fengu víti sem Kylian Mbappe skoraði úr. Sóknarmaðurinn jafnaði síðan metin 97 sekúndum síðar og fór það svo að leikurinn var framlengdur og veðmál Drake tapað.

Þrátt fyrir að hann tapaði veðmálinu virðist búið að aflétta þessari bölvun þar sem hann valdi jú réttan sigurvegara.
Athugasemdir
banner
banner