Fotbolti.net
21.01.20 - 15:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nabil Bentaleb í Newcastle (Staðest)

Mættur til Newcastle.

Mættur til Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Nabil Bentaleb er kominn til Newcastle á láni frá Schalke út tímabilið.
„Glaður að ganga til liðs við Newcastle fjölskylduna og mjög spenntur að klæðast litum þessa sögufræga félags," skrifar Bentaleb á Twitter.

Bentaleb er 25 ára gamall en hann spilaði með Tottenham frá 2013 til 2017.

Síðan þá hefur Bentaleb verið á mála hjá Schalke en hann hefur verið úti í kuldanum á þessu tímabili og ekkert komið við sögu í þýsku úrvalsdeildinni.

Newcastle mun hafa möguleika á að kaupa hann eftir tímabilið. Sagt er að umsamið kaupverð sé í kringum 8,5 milljónir punda.

Newcastle er í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton10+1922
3Man City11+822
4Liverpool10+418
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Aston Villa11-314
12Newcastle11-313
13Coventry11-812
14Hull City10011
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.