Eduardo Camavinga, miðjumaður Real Madrid, er ekki á leiðinni frá félaginu en þetta segir umboðsmaður leikmannsins, Joshua Barnett.
Í gær komu tíðindi þess efnis að Arsenal væri að reyna fá leikmanninn á láni frá Real Madrid út þetta tímabil.
Chelsea var einnig orðað við þennan öfluga franska miðjumann en nú hefur umboðsmaðurinn Barnett stigið fram og sagt að Camavinga verði áfram í Madrid.
„Þetta er ekki satt. Auðvitað vilja öll lið í heiminum fá him, en hann er mjög ánægður hjá Real Madrid og Real Madrid er ánægt með hann."
Þessu greindi Fabrizio Romano frá á Twitter.
Camavinga er tvítugur en hann gekk í raðir Real Madrid árið 2021 frá Rennes í Frakklandi.
Athugasemdir