Leikur Liverpool og Chelsea er nýhafinn á Anfield og strax á þriðju mínútu héldu leikmenn Chelsea að þeir væru að komast í forystu.
Kai Havertz kom knettinum í netið eftir að Thiago Silva hafði skotið í stöngina í kjölfar hornspyrnu.
James Milner spilaði Silva réttstæðan en löppin á Havertz var fyrir innan boltann þegar Silva spyrnir í hann.
VAR skoðaði atvikið og því var komist að þeirri niðurstöðu að dæma markið af.
Hægt er að sjá þetta atvik með því að smella hér.
Athugasemdir