Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 21. janúar 2023 22:37
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Annar tapleikur Fiorentina í röð - Kvennaliðið svaraði fyrir skellinn gegn Roma
Torino er í 7. sæti deildarinnar
Torino er í 7. sæti deildarinnar
Mynd: EPA
Fiorentina 0 - 1 Torino
0-1 Aleksey Miranchuk ('33 )

Fiorentina tapaði öðrum leik sínum í röð er liðið beið lægri hlut fyrir Torino, 1-0, í Flórens í dag.

Rússneski miðjumaðurinn Aleksey Miranchuk skoraði eina mark leiksins á 53. mínútu og tryggði Torino sigurinn.

Fiorentina er í 9. sæti deildarinnar með 23 stig en Torino nú komið upp í 7. sæti með 26 stig.

Það gekk betur hjá kvennaliði Fiorentina en karlaliðinu. Liðið vann 1-0 sigur á Sassuolo í dag, en Alexandra Jóhannsdóttir spilaði allan leikinn fyrir Fiorentina.

Liðið svaraði fyrir 7-1 tapið gegn toppliði Roma og er nú í 3. sæti með 28 stig.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner