Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. janúar 2023 16:00
Aksentije Milisic
Tchouameni biður stuðningsmenn Real afsökunar
Mynd: Getty Images

Aurelien Tchouameni, miðjumaður Real Madrid og franska landsliðsins, hefur beðið félagslið sitt afsökunar á ákvörðunartöku sinni.


Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur misst af síðustu þremur leikjum Real en hann meiddist á kálfa fyrr í þessum mánuði.

Hann spilaði ekki í Ofurbikarnum í Sádí-Arabíu og þá var hann ekki í leikmannahópnum þegar Real náði frábærri endurkomu gegn Villareal í spænska bikarnum.

Tchouameni var í Accor Arena í París að fylgjast með NBA leik hjá Chicago Bulls og Detroit Pistons á meðan Real var að spila í bikarnum.

„Ég vil biðja félagið, stuðningsmennina, liðsfélaga mína og þjálfarateymið afsökunar á því að hafa verið á viðburði á meðan leikurinn í bikarnum fór fram," skrifaði Frakkinn á samfélagsmiðlum.

„Ég fylgdist með hvað var að gerast í leiknum gegn Villareal en þetta var ekki rétt ákvörðun hjá mér. Ég biðst fyrirgefningar."

Real verður í eldlínunni á morgun þegar það mætir Athletic Bilbao í deildarkeppninni og spurning hvort Tchouameni mæti á þann leik.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner