ÍR og Grótta mættust í æfingaleik í meistaraflokki kvenna í Egilshöll í gærkvöldi. Gróttuliðið var meira með boltann á meðan ÍR beitti skyndisóknum og var jafnt á með liðunum til að byrja með.
Bjargey Ólafsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins um miðjan fyrri hálfleik og hún bætti svo við öðru marki í þeim síðari. Þrátt fyrir ágæt færi urðu mörkin ekki fleiri og 2-0 sigur Gróttu niðurstaðan.
Bjargey Ólafsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins um miðjan fyrri hálfleik og hún bætti svo við öðru marki í þeim síðari. Þrátt fyrir ágæt færi urðu mörkin ekki fleiri og 2-0 sigur Gróttu niðurstaðan.
ÍR 0 - 2 Grótta
0-1 Bjargey Ólafsdóttir
0-2 Bjargey Ólafsdóttir
Álafoss 2 - 3 Björninn
1-0 Sigurjón Björn Grétarsson
2-0 Ísak Pétur Causen
2-1 Hjalti Jóhannsson
2-2 Aron Már Þórðarson
2-3 Aron Már Þórðarson
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir