Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason og kærasta hans, Andrea Röfn Jónasdóttir, hafa eignast sitt fyrsta barn.
„Við ættum öll að fagna því hann hefur eignast litla prinsessu," sagði Uwe Rösler, þjálfari Malmö, á fréttamannafundi.
Malmö er að fara að keppa seinni leik sinn gegn Chelsea í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld á Stamford Bridge. Arnór flaug ekki með liðsfélögum sínum til Englands en talað var um að hann gæti komið til móts við liðið í dag.
„Ef það verður leigð einkaþota gæti hann kannski komist!" sagði Rösler brosandi á fundinum og óvíst með þátttöku Arnórs í kvöld.
Chelsea leiðir 2-1 eftir fyrri leikinn en sá seinni verður í kvöld klukkan 20.
UPPFÆRT 13:30: Arnór er kominn til London en hann birti á Instagram mynd af því þegar hann lenti í borginni. Hann verður því í hóp í kvöld.

Leikir dagsins:
17:55 Dinamo Zagreb - Viktoria Plzen (1-2)
17:55 Salzburg - Club Brugge (1-2)
17:55 Napoli - Zürich (3-1)
17:55 Eintracht Frankfurt - Shakhtar Donetsk (2-2)
17:55 Valencia - Celtic (2-0) - Stöð 2 Sport
17:55 Zenit - Fenerbache (0-1)
17:55 Villarreal - Sporting CP (1-0)
17:55 Arsenal - BATE (0-1) - Stöð 2 Sport 2
20:00 Inter - Rapíd Vín (1-0)
20:00 Genk - Slavia Prag (0-0)
20:00 Bayer Leverkusen - Krasnodar (0-0) - Stöð 2 Sport 2
20:00 Chelsea - Malmö (2-1) - Stöð 2 Sport
20:00 Real Betis - Rennes (3-3)
20:00 Dynamo Kiev - Olympiakos (2-2)
20:00 Benfica - Galatasaray (2-1)
Athugasemdir