Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 21. febrúar 2019 17:00
Elvar Geir Magnússon
Arsenal á þrjá og Man Utd tvo á lista yfir spennandi táninga
Callum Hudson-Odoi.
Callum Hudson-Odoi.
Mynd: Getty Images
Diogo Dalot og Mason Greenwood, leikmenn Manchester United, eru báðir á topp tíu lista FourFourTwo yfir mest spennandi táningar enska boltans.

Dalot (19 ára) var keyptur af Jose Mourinho síðasta sumar og hefur spilað ellefu aðalliðsleiki. Mason Greenwood (17) á enn eftir að leika fyrir aðalliðið en var ónotaður varamaður í Meistaradeildarleik gegn Valencia í desember.

Arsenal á þrjá á listanum, þar á meðal tvo leikmenn sem eru á láni í Þýskalandi. Á toppi listans er Callum Hudson-Odoi hjá Chelsea en Bayern München vill fá hann í sínar raðir.

10. Emile Smith Rowe - Arsenal (á láni hjá RB Leipzig)
9. Diogo Dalot - Manchester United
8. Ethan Ampadu - Chelsea
7. Matteo Guendouzi - Arsenal
6. Morgan Gibbs-White - Wolves
5. Mason Greenwood - Manchester United
4. Ryan Sessegnon - Fulham
3. Reiss Nelson - Arsenal (á láni hjá Hoffenheim)
2. Phil Foden - Manchester City
1. Callum Hudson-Odoi - Chelsea
Athugasemdir
banner
banner
banner