David De Gea mun standa í marki Manchester United þegar liðið tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.
Andrei Kanchelskis, fyrrum leikmaður Manchester United, ætlar að fylgjast með leiknum en hann er mikill aðdáandi spænska markvarðarins.
„De Gea er algjör lykilmaður í þessu liði, stórkostlegur leikmaður. Hann er sá besti í augnablikinu," segir Kanchelskis.
„Ég hef líkt honum og De Gea saman vegna þess hve mörg stig þeir vinna fyrir liðið sitt. Mín persónulega skoðun er sú að Schmeichel sé betri en De Gea, hann er best markvörður sem að ég hef séð spila."
Schmeichel og Kanchelskis léku saman með Manchester United hér á árum áður en þeir spiluðu saman í fjögur tímabil.
Athugasemdir