Philipp Schobesberger er leikmaður Rapid Wien en hann er á varamannabekk liðsins sem að mætir Inter Milan í Evrópudeildinni í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:00, á Ítalíu.
Schobesberger er kannski ekki þekktasta nafnið í bransanum en hann er fæddur árið 1993 og er austurrískur. Hann hefur spilað með Rapid Wien síðan árið 2014.
Leikmaðurinn hefur ætlað að nýta ferðina til Ítalíu vel ef marka má reikning hans á Tinder.
Tinder er stefnumótaforrit sem að gerir fólki kleift að kynnast í gegnum Internetið.
„Ég verð hérna í einungis tvær nætur svo að þið verðið að vera fljótar að hafa samband við mig," setti Schobesberger á Tinder fyrir þær dömur sem að höfðu áhuga á því að hitta hann í Mílanó.
Hér að neðan má sjá þessi skemmtilegu skilaboð frá Philipp Schobesberger!
Noi interisti ci preoccupiamo tanto per Icardi, mentre i giocatori del Rapid approfittano dei giorni milanesi per divertirsi su tinder 😂😂😂 pic.twitter.com/ljS2lmjhU3
— Marta Basso (@martabassof) February 19, 2019
Athugasemdir