Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 21. febrúar 2019 13:30
Elvar Geir Magnússon
Mbappe kominn með 20 deildarmörk
Kylian Mbappe.
Kylian Mbappe.
Mynd: Getty Images
Hinn magnaði Kylian Mbappe er kominn með 20 deildarmörk á tímabilinu. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi tvítugi leikmaður nær þeim fjölda á einu tímabili.

Paris Saint-Germain rúllaði yfir Montpellier 5-1 í gær en Mbappe skoraði eitt af mörkum frönsku meistarana.

Mbappe er búinn að skora þessi 20 mörk í 10 deildarleikjum en hann er kominn með 25 mörk í öllum keppnum.

Layvin Kurzawa og Angel di Maria skoruðu einnig í leiknum í gær en tvö af mörkum PSG voru sjálfsmörk frá Montpellier.

PSG hefur mikla yfirburði í frönsku deildinni, er með 15 stiga forystu á Lille.
Athugasemdir
banner
banner