Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. febrúar 2019 09:12
Magnús Már Einarsson
Rakel krækti í vítaspyrnu fyrir Reading
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rakel Hönnudóttir krækti í vítaspyrnu fyrir Reading þegar liðið tapði 2-1 gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Fara William skoraði úr vítaspyrnunni og minnkaði muninn í 2-1 en lengra komst Reading ekki.

Rakel samdi við Reading á dögunum og stimplaði sig inn með því að skora sigurmarkið gegn Birmingham í 16-liða úrslitum enska bikarsins.

Í næstu viku heldur Rakel til Algarve í Portúgal þar sem hún verður í eldlínunni í æfingamóti með íslenska landsliðinu.

Sjá einnig:
Rakel mætir United - Markmiðið var að spila á Englandi
Athugasemdir
banner