Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 21. febrúar 2019 12:30
Magnús Már Einarsson
Siggi Raggi kom til greina sem þjálfari Ástralíu
Mynd: Getty Images
Sigurður Ragnar Eyjólfsson kom til greina sem næsti landsliðsþjálfari kvennaliðs Ástralíu áður en Ante Milicic var ráðinn í starfið á mánudaginn.

Samkvæmt frétt The Sidney morning herald voru Sigurður Ragnar og Milicic tvær eftir í myndinni áður en sá síðarnefndi var ráðinn.

Þetta er í annað skipti sem Sigurður Ragnar er nálægt því að vera ráðinn til starfa í Ástralíu en árið 2014 bauðst honum að taka við sem tæknilegur ráðgjafi hjá ástralska knattspyrnusambandinu.

Þá ákvað Sigurður Ragnar að fara frekar til Lilleström sem aðstoðarþjálfari með Rúnari Kristinssyni.

Sigurður Ragnar stýrði síðast kvennaliði Kína en hann var rekinn í fyrravor og hefur ekki tekið við liði síðan þá.


Athugasemdir
banner
banner
banner