Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. febrúar 2019 15:31
Magnús Már Einarsson
Stuðningsmenn Man Utd og Liverpool gómaðir við lygar
Hvernig fer á sunnudaginn?
Hvernig fer á sunnudaginn?
Mynd: Getty Images
Erkifjendurnir í Manchester United og Liverpool mætast á Old Trafford á sunnudaginn.

Liverpool er í harðri baráttu um Englandsmeistaratitilinn á meðan Manchester United er að berjast um Meistaradeildarsæti.

Til að hita upp fyrir leikinn fékk Sky Sports einn stuðningsmann frá hvoru liði í spjall.

Stuðningsmennirnir voru tengdir við lygamæli á meðan þeir svöruðu spurningum um Liverpool og Manchester United.

Nokkrum sinnum voru þeir gripnir glóðvolgir við að ljúga!



Athugasemdir
banner
banner