Fotbolti.net
21.02.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England um helgina - Mourinho mætir á Brúnna

England um helgina - Mourinho mætir á Brúnna
Canon

Mynd: Getty Images

Það er stútfull helgi framundan í ensku úrvalsdeildinni og eru tveir stórleikir á dagskrá í dag.
Dagurinn hefst á Lundúnaslag Chelsea og Tottenham sem fer fram á Stamford Bridge. Eitt stig skilur liðin að í Meistaradeildarbaráttunni þar sem Chelsea situr í fjórða sæti og Tottenham fimmta.

Jose Mourinho mætir aftur á Brúnna en lærisveinar hans töpuðu á heimavelli gegn RB Leipzig fyrr í vikunni.

Deginum lýkur svo á viðureign Leicester og Manchester City, sem eru í baráttu um annað sæti úrvalsdeildarinnar.

Man City er fjórum stigum á undan en það er svo gott sem ómögulegt fyrir liðin að ná toppliði Liverpool, sem er með ótrúlega 22 stiga forystu.

Jóhann Berg Guðmundsson er kominn úr meiðslum og er í leikmannahópi Burnley sem tekur á móti Bournemouth. Sá leikur fer fram á sama tíma og þrír aðrir leikir.

Á sunnudaginn á Wolves heimaleik við botnlið Norwich á sama tíma og Manchester United tekur á móti Watford.

Arsenal og Everton mætast svo í síðasta leik helgarinnar. Tvö stig skilja liðin að um miðja deild. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar eru fyrir ofan, aðeins fimm stigum frá Meistaradeildinni.

27. umferð lýkur þó ekki fyrr en á mánudagskvöldið, þegar Liverpool fær West Ham í heimsókn.

Laugardagur:
12:30 Chelsea - Tottenham (Síminn Sport)
15:00 Sheffield Utd - Brighton
15:00 Southampton - Aston Villa
15:00 Crystal Palace - Newcastle
15:00 Burnley - Bournemouth
17:30 Leicester - Man City (Síminn Sport)

Sunnudagur:
14:00 Wolves - Norwich
14:00 Man Utd - Watford (Síminn Sport)
16:30 Arsenal - Everton (Síminn Sport)

Mánudagur:
20:00 Liverpool - West Ham (Síminn Sport)
England um helgina - Mourinho mætir á Brúnna
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.