Sóknarnaðurinn Alfreð Finnbogason mun ekki leika með Augsburg í dag í þýsku úrvalsdeildinni gegn Bayer Leverkusen vegna meiðsla.
Síðustu vikur hefur Alfreð verið að glíma við kálfameiðsli og hann er ekki klár í slaginn í dag gegn Leverkusen.
„Iago, Finnbogason og Jensen eru ekki með," sagði Heiko Herrlich, þjálfari Augsburg, á blaðamannafundi á föstudag.
Alfreð spilaði síðast í þýsku úrvalsdeildinni í janúar en það er vonandi að hann sé að jafna sig og komi fljótlega til baka. Það eru mikilvægir landsleikir í næsta mánuði þegar Ísland hefur leik í undankeppni HM 2022.
Athugasemdir