Fotbolti.net
21.02.21 - 19:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arteta: Úrslitaleikur á fimmtudag - Flott frammistaða en gefur ekkert

Arteta: Úrslitaleikur á fimmtudag - Flott frammistaða en gefur ekkert
Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Við fengum á okkur mark snemma og það kom City í þá stöðu sem liðið vill vera í. Eftir það gerðum við mjög vel og bjuggum til frábær tækifæri. Þeir eru með frábært lið og mér fannst við gera vel, en það gefur mér ekkert. Ég er vonsvikinn að fá ekkert úr þessum leik,"</I> sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir 0-1 tap gegn Man City á heimavelli.

<i>„Þeir gera sína hluti frábærlega og hafa gert þessa hluti saman í fimm ár. Þess vegna eru þeir þar sem þeir eru. Okkur vantaði gæðin til þess að skora,"</I> bætti Arteta við.
Arsenal mætir Benfica í seinni leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudag.

„Við eigum úrslitaleik á fimmtudag og við viljum komast áfram. Við verðum að borða, sofa og svo er flug til Grikklands," sagði Arteta.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.