Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. mars 2019 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ronaldo fékk sekt - Sleppur við bann
Simeone einnig sektaður
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus, hefur verið sektaður um 17700 pund af UEFA. Ronaldo er sektaður fyrir fagnið sitt eftir að hann fullkomnaði þrennu sína í 3-0 sigri Juventus á Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu á dögunum.

Juventus vann einvígið samtals 3-2. Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid fékk einnig sekt fyrir sitt fagn eftir 2-0 sigur Atletico í fyrri leiknum.

Simeone þarf að greiða 17000 pund í sekt fyrir athæfi sitt. Simeone greip um miðsvæði sitt til að sýna að hann væri með stórar hreðjar. Ronaldo svaraði með svipuðu fagni.

Juventus mætir Ajax í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í apríl. Ronaldo fékk ekki leikbann fyrir athæfið svo að hann leiðir líklega framlínu Juventus í einvíginu gegn Ajax.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner