Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 21. mars 2019 15:30
Arnar Helgi Magnússon
Willian bíður eftir nýjum samning frá Chelsea
Mynd: Getty Images
Willian bíður nú eftir því að Chelsea bjóði honum nýjan samning en núverandi samningur hans rennur út sumarið 2020.

Willian kom til Chelsea árið 2013 frá Anzhi Makhachkala. Hann vonast til þess að geta verið lengur hjá Chelsea.

„Ég á bara eitt ár eftir af samningi en ég vil spila lengur fyrir þetta félag. Ég veit ekki hvort að þeir vilji semja aftur við mig en ég vil vera hér áfram, það er engin spurning," segir Willian.

„Þetta félag á sérstakan stað í hjarta mínu. Ég hef unnið titla hér, stuðningsmennirnir og starfsmennirnir bera virðingu fyrir mér og ég geri slíkt hið sama."

Samningamál Willian og Chelsea hafa svolítið fallið í skuggan á Eden Hazard og hans málum. Hann gæti verið á leiðinni burt frá félaginu í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner