Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 21. apríl 2019 11:33
Arnar Helgi Magnússon
Byrjunarlið Everton og Man Utd: Gylfi á sínum stað - Matic og Lukaku byrja
Mynd: Getty Images
Everton tekur á móti Manchester United í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Flautað verður til leiks á Goodison Park klukkan 12:30.

Manchester United er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti og þarf liðið á þremur stigum að halda í dag. United hefur unnið tvo af síðustu sjö leikjum sínum.

Gylfi Þór Sigurðsson er á sínum stað í byrjunarliði Everton. Andre Gomes er ekki í leikmannahópnum en hann tekur út þriggja leikja bann.

Hjá Manchester United snýr Nemanja Matic aftur á miðsvæðið en hann verður þar ásamt Fred og Paul Pogba. Romelu Lukaku byrjar fremstur með Martial og Rashford sitthvoru megin við sig.

Byrjunarlið Everton: Pickford; Coleman, Keane, Zouma, Digne; Gueye, Schneiderlin; Richarlison, Sigurdsson, Bernard; Calvert-Lewin
(Varamenn: Stekelenburg, Jagielka, Walcott, Tosun, McCarthy, Davies, Lookman)

Byrjunarlið Manchester United: De Gea, Lindelof, Jones, Pogba, Lukaku, Rashford, Martial, Smalling, Fred, Dalot, Matic
(Varamenn: Romero, Sanchez, Mata, Lingard, Pereira, Young, McTominay)




Athugasemdir
banner
banner