Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 21. apríl 2019 12:00
Arnar Helgi Magnússon
Fekir rekur umboðsmanninn
Mynd: Getty Images
Nabil Fekir er í leit að nýjum umboðsmanni eftir að hafa látið Jean-Pierre Bernes fara nú á dögunum.

Fekir var hluti af franska hópnum sem að vann Heimsmeistaratitilinn í Rússlandi síðasta sumar. Hann var síðan nálægt því að ganga í raðir Liverpool en þau félagsskipti gengu ekki í gegn.

Frakkinn leikur með Lyon en hann er búinn að eiga gott tímabil, 12 mörk skoruð og fimm stoðsendingar.

„Ég er hættur sem umboðsmaður Fekir. Þetta kláraðist á fimmtudag," sagði Jean-Pierre í viðtali nú fyrir helgi.

„Þetta var alfarið hans ákvörðun um að okkar samstarf myndi hætta. Allt tekur einhverntímann enda og ég óska Fekir góðs gengis með nýjum umboðsmanni."

Ekki er ólíklegt að Fekir vilji færa sig um set í sumar og þá í stærra lið.
Athugasemdir
banner