Lautaro Martinez, argentínski framherji Inter, skaust fyrir alvöru fram á sjónarsviðið með frammistöðu sinni með Inter í vetur. Barcelona er sagt hafa mikinn áhuga á framherjanum sem er með 97 milljón punda riftunarákvæði í sínum samningi.
Barcelona hefur byrjað að bjóða leikmenn í skiptum fyrir Martinez og leikmaðurinn er sagður hafa áhuga á að fara til Barca. Inter er sagt hafa mestan áhuga á brasilíska miðjumanninum Arthur en Barcelona vill ekki missa Brassann.

Næstir í röðinni á lista Inter, samkvæmt heimildum Sky Sports eru Carlos Alena og Nelson Semedo. Semedo er hægri bakvörður og Alena ungur miðjumaður.
Barcelona hefur einnig boðið Inter að fá Junior Firpo, ungan vinstri bakvörð, sem kom frá Betis síðasta sumar. Inter er sagt hafa lítinn áhuga á Firpo.
Þá er Barcelona sagt í leit að vinstri bakverði og er Nicolas Tagliafico, sem er á mála hjá Ajax, sagður efstur á lista.
Athugasemdir