Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 21. apríl 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
David Silva í viðræðum við Valencia
Mynd: Getty Images
David Silva, miðjumaður Manchester City, er í viðræðum við sitt gamla félag Valencia.

Hinn 34 ára gamli Silva ætlar að yfirgefa Manchester City þegar samningur hans rennur út í sumar.

Silva verður samningslaus 30. júní en möguleiki er á að hann framlengi samninginn um einhverjar vikur og klári tímabilið með City ef boltinn fer að rúlla aftur á Englandi.

Silva hefur leikið með Manchester City í tíu ár en hann var áður á mála hjá Valencia í sex ár.

Valencia hefur boðið Silva þriggja ára samning en Inter Miami, lið David Beckham í Bandaríkjunum, og Juventus hafa einnig sýnt leikmanninum áhuga.
Athugasemdir
banner
banner
banner